• KultureGeek
  • Comparateur de prix
       
iPhoneAddict
 iAddictv5Notre Application iPhone/iPad
  • Accueil Apps
  • Actualité Apple
  • Keynote Apple
  • Firmwares & iTunes
  • Contactez-nous
Accueil » Liste des Apps » Apps Universelles » Education » Lærum og leikum - Allt
3.0 iOS €Gratuit Raddlist 0 0 Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama...
Lærum og leikum - Allt

Lærum og leikum - Allt

iOS Universel / Education

Gratuit au lieu de 7,99€
Obtenir sur l'App Store

Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla.


Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Frá 2017 hafa forrit Raddlistar fengið 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum.


Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.


Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone.

Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.


Lærum og leikum með hljóðin inniheldur:

- Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir

- Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur

- 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið

- Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega

- Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni

- Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina

- Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð

- Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði

- Hljóðtenging er æfð til að undirbúa læsi og styrkja framburð málhljóðanna

- Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum

- Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða

- R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)

- Fjórir gagnvirkir leikir auk orðforðaaæfinga með þjálfun setninga

- Hrós veitt reglulega í forritinu

- Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta en vistast ekki í snjalltækinu

- Foreldravörn aukin

-Skráning nemenda: nafn, aldur. Engar myndir vistast í tækjum og eða fara í sendingu

- Stigagjöf inni í forritinu

- Árangur sýndur í %

- Skráning athugasemda inni í forritinu

- Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti. Engar myndir áframsendar.

- Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print). Engar myndir fara í prentun gagna

- Vistun og sending minnir á verndun gagna m.t.t. Persónuverndar

- Engar auglýsingar



Mennta- og barnamálaráðuneytið, Þróunarsjóður námsgagna og Uppbyggingarsjóður Suðurnesja styrktu nýja útgáfu Lærum og leikum með hljóðin frá grunni í opna útgáfu iOs og vefútgáfu.
Við þökkum tölvunarfræðideild HR og Therapy Box fyrir samstarfið.


Frekari upplýsingar:

http.www.youtube/laerumogleikum

www. laerumogleikum.is

En voir plus...

Quoi de neuf dans la dernière version ?

Appið hefur verið grunnkóðað frá grunni í nýtt kerfi sem bætir virkni. Nýr hljóðtengileikur sem undirbýr læsi og réttan framburð hefur verið þróaður í appið með nýjum íslenskum teikningum og hljóðgögnum. Ýmis uppsetning endurbætt, ný mynd af síma. Aðgangsstýring/foreldravörn hefur verið aukin og öll áhætta takmörkuð á notkun kennslukerfisins. Ef valið er að skrá framfarir nem. er unnt að hafa þær dulkóðaðar. Kyn er ekki skráð. Engar myndir vistast í myndasafni iPadsins eða eru sendar úr tækinu. Enginn aðgangur þriðja aðila er að gögnum. Engar auglýsingar. Rannsóknir sýna góðan árangur af notkun forritsins og forritið er nú uppfært svo allir njóti! Góðar stundir í að læra og leika!

  • Screenshot #1 pour Lærum og leikum - Allt
  • Screenshot #2 pour Lærum og leikum - Allt
  • Screenshot #3 pour Lærum og leikum - Allt
  • Screenshot #4 pour Lærum og leikum - Allt
  • Screenshot #5 pour Lærum og leikum - Allt
  • Screenshot #6 pour Lærum og leikum - Allt

D'autres applications du développeur

Lærum og leikum með hljóðin -D
Lærum og leikum með hljóðin -D
/ iOS Universel
Kids Sound Lab Pro
Kids Sound Lab Pro
/ iOS Universel
Íslenski málhljóðamælirinn
Íslenski málhljóðamælirinn
/ iOS Universel

Note

(0 note)

Détails sur l'application

Version
3.0
Taille
180.8 Mo
Version minimum d'iOS
13.4
Dernière mise à jour
20/09/2024
Publié par
Raddlist

Newsletter App Store

Recevez chaque jour les meilleures promos

Actualité Apple

Image Apple Watch 2026 : un nouveau design et d’autres nouveautés
Apple Watch 2026 : un nouveau design et d’autres nouveautés
Image [#Promos] iPhone 16e à 530€, Apple Watch Series 10 à 324 € et MacBook Air M4 à 919 €
[#Promos] iPhone 16e à 530€, Apple Watch Series 10 à 324 € et MacBook Air M4 à 919 €
Image Apple est en lice pour diffuser davantage de baseball
Apple est en lice pour diffuser davantage de baseball
Image iPhone 17 Pro Max : des détails sur le téléobjectif et le design interne avec la batterie en métal
iPhone 17 Pro Max : des détails sur le téléobjectif et le design interne avec la batterie en métal
Partenaires : Actualité iPhone - Culture Geek
©2009-2025 i2CMedia | A propos |