iPhoneAddict Apps
  • Actualités
  • Accueil Apps
  • iPhone
  • iPad
  • Universelles
  • Mac
  • Apple TV
KG KultureGeek
App
iPhone / iPad Télécharger iAddict v5 Mac Télécharger iAddict Mac
  • Actualités
  • Accueil Apps
  • iPhone
  • iPad
  • Universelles
  • Mac
  • Apple TV
  • Archives keynotes
  • Firmwares & iTunes
  • Contactez-nous
  • Comparateur de prix
  • KultureGeek
Accueil » Liste des Apps » Apps iPad » Education » Sögusteinninn leikjabók
L'application n'est plus disponible sur l'App Store français
1.0 iOS €Gratuit Gebo Kano ehf. 0 0 Sögusteinninn er frábær viðbót á íslenskum bóka- og smáforritamarkaði. Um er að ræða spennandi, fróðlega og gagnvirka leikjabók og hljóðbók fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára. Lekjabókin var styrkt af eftirtöldum aðilum: •...
Sögusteinninn leikjabók

Sögusteinninn leikjabók

iPad / Education

Gratuit
Obtenir sur l'App Store
Facebook X E-mail

Sögusteinninn er frábær viðbót á íslenskum bóka- og smáforritamarkaði. Um er að ræða spennandi, fróðlega og gagnvirka leikjabók og hljóðbók fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára.

Lekjabókin var styrkt af eftirtöldum aðilum:
•Menningarstyrkur tengdur nafni Jóhannesar Nordal
•Þróunarsjóður námsgagna

Leikjabókin skiptist í 11 myndskreytta kafla sem í senn er hægt að lesa og hlusta á. Í hverjum kafla er leikjaþraut tengd sögunni sem gerir lesanda kleift að vera þátttakandi í söguþræðinum.
Auk þess að vera kjörið lesefni fyrir börn veitir leikjabókin innsýn í íslenskan þjóðmenningararf.

Sagan fjallar um krakkana Helenu og Unnar sem búa yfir yfirnáttúrulegum hæfileikum. Þegar álfurinn Gjúki þarfnast aðstoðar þeirra dragast þau inn í Hulduheim og lenda í æsispennandi ævintýrum. Vættirnar í Hulduheimi lifa eins og Íslendingar gerðu fyrr á öldum. Í gegnum söguna kynnist lesandi því bæði þjóðsagnaarfinum og lifnaðarháttum Íslendinga áður fyrr

Sögusteinninn er hörkupspennandi og skemmtileg saga sem má lesa sér til afþreyingar en hún nýtist einnig í skólastarfi fyrir nemendur í 3. – 5. bekk.

Efni bókarinnar tengist eftirfarandi hæfniviðmiðum úr aðalnámskrá Grunnskóla. Að nemendur geti:

Íslenska
•nýtt sér og endursagt efni á rafrænu formi,
•valið sér lesefni eftir áhuga og þörf og lesið sögur, ljóð og fræðandi efni, sem hæfir lestrargetu, sér til ánægju og skilnings,
•lesið ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum,
•aflað sér upplýsinga úr ýmsum tiltækum gagnabrunnum, svo sem bókum og á rafrænu formi,
•valið bók eða annað lesefni og lesið sér til ánægju.

Samfélagsfræði
•bent á tengsl valinna þátta í samfélagi, náttúru, trú og lífsviðhorfi, einkum í nærsamfélaginu,
•nefnt dæmi um einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu, sögu og menningar,
•sagt frá einkennum og sögu heimabyggðar og tengslum við önnur svæði á Íslandi,
•aflað sér og nýtt vitneskju um samfélagsmálefni í námsgögnum og miðlum.
•rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi,
•bent á dæmi um áhrif tækni og framkvæmda á mannlíf og umhverfi,
•komið auga á nokkra þætti sem hafa haft áhrif á mannlífið í tímans rás, svo sem umhverfi og skipulag samfélaga,
•sagt frá gerð og mótun íslensks samfélags fyrr og nú,
•bent á dæmi um hvernig sagan birtist í munum og minningum,

Upplýsingatækni
•nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni,

Textílmennt
•sagt frá íslensku hráefni og unnið með það á einfaldan hátt,


Heimilisfræði
•tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald, helstu hátíðir Íslendinga, siði sem þeim fylgja og þjóðlegan mat.


Í kennsluleiðbeiningum er að finna hugmyndir að umræðuefni og verkefnahugmyndir til að nota með efni bókarinnar. Þau verkefni tengjast mörg fleiri hæfniviðmiðum sem eru talin upp í kennsluleiðbeiningunum. Kennsluleiðbeiningarnar er að finna á eftirfarandi slóð:
http://gebokano.com/Sogusteinninn/TilKennara.pdf

En voir plus...

  • Screenshot #4 pour Sögusteinninn leikjabók
  • Screenshot #5 pour Sögusteinninn leikjabók
  • Screenshot #6 pour Sögusteinninn leikjabók

Note

(0 note)

Détails sur l'application

Version
1.0
Taille
186.6 Mo
Version minimum d'iOS
12.1
Dernière mise à jour
23/08/2019
Publié par
Gebo Kano ehf.

Newsletter App Store

Recevez chaque jour les meilleures promos

Actualité Apple

Image L’iMac M6 avec de nouveaux coloris arrive avant la fin de l’année
L’iMac M6 avec de nouveaux coloris arrive avant la fin de l’année
Image Les Apple Store vont se préparer aux nouveaux produits maison, dont le hub domotique
Les Apple Store vont se préparer aux nouveaux produits maison, dont le hub domotique
Image iPhone Ultra pliable : les premiers avis des testeurs chez Apple
iPhone Ultra pliable : les premiers avis des testeurs chez Apple
Image L’Apple Vision Pro a failli se nommer Reality Pro
L’Apple Vision Pro a failli se nommer Reality Pro
iPhoneAddict Apps

Le catalogue iPhoneAddict pour suivre les nouveautés, mises à jour et baisses de prix de l’App Store.

Apps

Toutes les apps iOS iPhone iPad Universelles Mac Apple TV

iPhoneAddict

Actualité Apple Archives keynotes Contact À propos KultureGeek

Suivez-nous

©2009-2026 i2CMedia. Tous droits réservés.