Púlsinn
iOS Universel / Actualités
Púlsinn er íslenskur samfélagsmiðill fyrir raunverulegt fólk þar sem þú getur lesið fréttir, hlustað á hlaðvörp og tekið þátt í umræðu undir eigin nafni. Fréttir, hlaðvörp, myndbönd og samfélag á einum stað.
Við trúum því að umræðan geti verið betri þegar fólk kemur fram undir nafni, þess vegna eru allir í Púlsinum auðkenndir með rafrænum skilríkjum. Engin nafnleynd, engin gervimenni og engin froða. Bara alvöru fólk í alvöru samtali.
ALLAR ÍSLENSKAR FRÉTTIR Á EINUM STAÐ
Púlsinn safnar saman fréttum, myndböndum og hlaðvörpum frá íslenskum miðlum og flokkar í sex flokka:
- FRÉTTIR: innlendar og erlendar fréttir
- VIÐSKIPTI: viðskiptafréttir og pistlar
- SENAN: bíó, tónlist, menning, fólk, matur, heilsa, tíska, heimili og hönnun
- SPORTIÐ: allar íþróttafréttir á einum stað
- PISTLAR: Ýmsir pistlar
TAKTU ÞÁTT Í UMRÆÐUNNI
Skrifaðu færslur, settu inn athugasemdir og svaraðu öðrum. Líkaðu við efni, deildu skoðunum þínum og fylgstu með því sem samfélagið er að ræða.
FYLGSTU MEÐ ÞVÍ SEM SKIPTIR ÞIG MÁLI
Fylgdu öðrum notendum, fréttamiðlum, hlaðvörpum og hópum. Púlsinn raðar efni í þinn eigin straum (Púlsinn) eftir því sem þú fylgir.
HLAÐVÖRP
Hlustaðu á uppáhalds hlaðvörpin þín beint í appinu, fylgstu með nýjum þáttum og deildu því sem þér finnst áhugavert.
STOFNAÐU HÓPA
Búðu til opna eða lokaða hópa um það sem sameinar þig og aðra. Áhugamál, hverfið þitt, vinnustaðurinn eða hvað sem er. Þú ræður hverjir eru með.
GERÐU PÚLSINN AÐ ÞÍNUM
- Dökkt eða ljóst útlit
- Stillanlegar leturstærðir
- Veldu hvaða miðlar birtast í fréttalistanum
ÖRUGGT OG ÁBYRGT
Púlsinn er fyrir 18 ára og eldri. Öll gögn eru hýst innan EES og við seljum aldrei persónuupplýsingar. Þú getur tilkynnt efni beint í appinu og við tökum á málum á gagnsæjan og sanngjarnan hátt.
Sæktu Púlsinn og taktu þátt í umræðunni.
Raunverulegt fólk. Raunverulegar skoðanir.
Quoi de neuf dans la dernière version ?
RISA-uppfærsla á Púlsinum sem er ekki lengur bara fréttaveita, heldur íslenskur samfélagsmiðill fyrir raunverulegt fólk.
NÝTT Í ÞESSARI ÚTGÁFU:
- Samfélag og umræða: skrifaðu færslur, settu inn athugasemdir og svaraðu öðrum undir þínu eigin nafni
- Þinn eigin straumur: fylgdu fólki, miðlum, hlaðvörpum og hópum og fáðu efni sniðið að þér
- Hópar: stofnaðu opna eða lokaða hópa um allt og ekkert (áhugamál, hverfið eða vinnustaðinn)
- Póstaðu, endurbirtu pósta annara, notaðu @-merkingar til að merkja vini eða annað fólk, GIF og myndir í umræðum
- Ýmsir leikir, kannanir og margt fleira skemmtilegt
Takk fyrir að vera með. Segðu okkur hvað þér finnst á pulsinn@pulsinn.is eða bara inní appinu sjálfu :)