iPhoneAddict Apps
  • Actualités
  • Accueil Apps
  • iPhone
  • iPad
  • Universelles
  • Mac
  • Apple TV
KG KultureGeek
App
iPhone / iPad Télécharger iAddict v5 Mac Télécharger iAddict Mac
  • Actualités
  • Accueil Apps
  • iPhone
  • iPad
  • Universelles
  • Mac
  • Apple TV
  • Archives keynotes
  • Firmwares & iTunes
  • Contactez-nous
  • Comparateur de prix
  • KultureGeek
Accueil » Liste des Apps » Apps Universelles » Education » FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
L'application n'est plus disponible sur l'App Store français
2.0 iOS €Gratuit Raddlist 0 0 ÖLL MÁLHLJÓÐIN í íslensku eru æfð í Froskaleikurinn - Skólameistarinn. Þar segir frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Í skemmtilegum hljóðgreiningarleik þarf Hoppi að leysa ýmsar...
FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa

FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa

iOS Universel / Education

Gratuit au lieu de 5,99€
Obtenir sur l'App Store
Facebook X E-mail

ÖLL MÁLHLJÓÐIN í íslensku eru æfð í Froskaleikurinn - Skólameistarinn. Þar segir frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Í skemmtilegum hljóðgreiningarleik þarf Hoppi að leysa ýmsar þrautir til að komast í galdrakastalann sem geymir lausnina að því að hann nái málinu aftur. Börnin hjálpa Hoppa að finna galdrabókina, töfrasprotann og lykilinn að kastalanum. Þar þarf að brugga galdraseyði fyrir Hoppa svo hann fái málið aftur. Íslensku málhljóðin eru æfði í erfiðleikaröð með æfingum í hljóðavitund, hljóðgreiningu, tengingu hljóðs við bókstaf, mynd af orði og skrifuðu orði. Allt eru þetta mjög mikilvægir þættir í hljóðkerfisvitund og nefnuhraða til undirbúnings læsi og lesfimi. Bókstafir málhljóðanna sem ekki eru sögð fremst í orðum eru merktir sérstaklega þar sem þeir koma fyrir í orðunum.
Þar eru hljóð aftast og í miðju (ng, ð, mjúka G).
Sólin í hverju borði gefur greinargóðar upplýsingar um hvað á að gera hverju sinni.

Höfundur smáforritsins er talmeinafræðingur með margra ára reynslu í starfi á Íslandi. Byggt er á rannsóknum um hvaða grunnfærni einstaklingur þarf að hafa til að læra að lesa; m.a. ákveðnum þáttum í hljóðkerfisvitund og úrvinnslu, vitund um letur, gott talmál og að kalla fram hljóðrænar upplýsingar í orðaminni þegar þekkja á skrifuð orð. Allir þessir þættir stuðla að lestrarnákvæmni og lestraröryggi sem er forsenda sjálfvirkni í lestri.

Góður málskilningur og orðaforði er undirstaða fyrir góðan lesskilning. Í smáforritinu eru hundruð orða kennd með íslenskum teikningum Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur og Búa Kristjánssonar auk þess sem öll orð eru talsett af Védísi Hervöru Árnadóttur og Felix Bergssyni.

Mikilvægar ábendingar frá Hoppa froski:
Smellið á blikkandi sjónvarp efst uppi til hægri til að heyra söguna í upphafi.

Borðin í Froskaleiknum eru læst þannig að í fyrstu umferð verður nemandi að fara í gegnum hvert og eitt hljóð/staf einu sinni og ná öllum 4 stjörnum i hverju leikborði. Annars hoppar Hoppi ekki áfram. Eftir það opnast leikurinn og hægt að velja af handahófi. Markmiðið er kennslufræðilegs eðlis, tryggja sem mest og best nám hjá hverju barni.

Málhljóðin í Froskaleiknum eru æfð í gegnum leik þar sem lögð er áhersla á:

1) Hljóðavitund. Kynning á bókstaf, hljóði og fingrastafrófi. Þá er fyrirmynd fyrir hljóðið kynnt með vísan í heyrn- sjónrænt minni með lítilli sögu fyrir hvert hljóð

2) Hljóðatenging og umskráning: lítill/stór stafur. Bókstafur tengdur við hljóðið sem sýnt er með táknmynd þess. En þar er umskráning æfð sem mikilvæg er til undirbúnings lestrarferlinu. Stjörnugjöf og stika sem sýnir hvar þú ert kominn

3) Hljóðgreining. Hljóð tengt við mynd þar sem tengja þarf rétt hljóð við rétt orð. Stjörnugjöf og stika sem sýnir þér hvar þú ert kominn

4) Hljóðgreining og skrifað orð, nefnuhraði > að þekkja skrifað orð og kalla fram úr orðasafni hljóðrænar upplýsingar. Barnið smellir á skrifuðu orðin til að heyra heiti þeirra, hlustar vel á orðin og velur rétta hljóðamynd fyrir hljóðið. Smám saman tileinkar barnið sér ákveðna sjálfvirkni í að lesa ritháttarmyndina fyrir orðið og tengir við hljóðkerfisvitundina

Forritið er fyrir börn frá 4 – 5 ára aldri og hentar langt fram á grunnskólaaldur, eftir eðli mála. Forritið gefur möguleika á að velja léttari æfingar fyrir byrjendur. Röð hljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér þau í máltökunni en fylgja ekki hefðbundinni stafrófsröð. Hægt er að skrá nemanda og fylgjast með stöðu hans hverju sinni. Þá er hægt að prenta út upplýsingar og senda þær í tölvupósti.
Engar auglýsingar eru í smáforritinu. Foreldravörn.

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:
Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka.

Styrkir vegna þróunar Froskaleikja Hoppa: Þróunarsjóður námsgagna, Barnavinafélagið Sumargjöf og Barnamenningarsjóður

En voir plus...

Quoi de neuf dans la dernière version ?

This app has been updated by Apple to display the Apple Watch app icon.

iOS 10 samhæfi

  • Screenshot #1 pour FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
  • Screenshot #2 pour FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
  • Screenshot #3 pour FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
  • Screenshot #4 pour FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
  • Screenshot #5 pour FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa
  • Screenshot #6 pour FROSKALEIKUR - SKÓLAMEISTARINN - Listin að lesa

D'autres applications du développeur

Lærum og leikum með hljóðin -DLærum og leikum með hljóðin -DiOS UniverselLærum og leikum - AlltLærum og leikum - AlltiOS UniverselKids Sound Lab ProKids Sound Lab ProiOS UniverselÍslenski málhljóðamælirinnÍslenski málhljóðamælirinniOS Universel

Note

(0 note)

Détails sur l'application

Version
2.0
Taille
537.9 Mo
Version minimum d'iOS
8.0
Dernière mise à jour
07/11/2016
Publié par
Raddlist

Newsletter App Store

Recevez chaque jour les meilleures promos

Actualité Apple

Image Le récap Apple de la semaine : iOS 27, iPhone 18, AirPods et grand ménage chez Apple
Le récap Apple de la semaine : iOS 27, iPhone 18, AirPods et grand ménage chez Apple
Image L’iMac M6 avec de nouveaux coloris arrive avant la fin de l’année
L’iMac M6 avec de nouveaux coloris arrive avant la fin de l’année
Image Les Apple Store vont se préparer aux nouveaux produits maison, dont le hub domotique
Les Apple Store vont se préparer aux nouveaux produits maison, dont le hub domotique
Image iPhone Ultra pliable : les premiers avis des testeurs chez Apple
iPhone Ultra pliable : les premiers avis des testeurs chez Apple
iPhoneAddict Apps

Le catalogue iPhoneAddict pour suivre les nouveautés, mises à jour et baisses de prix de l’App Store.

Apps

Toutes les apps iOS iPhone iPad Universelles Mac Apple TV

iPhoneAddict

Actualité Apple Archives keynotes Contact À propos KultureGeek

Suivez-nous

©2009-2026 i2CMedia. Tous droits réservés.